
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Hvernig viljum við að Ísland líti út árið 2040 og hvaða ákvarðanir þurfum við að taka í dag til að komast þangað? Því verður reynt að svara í dag þegar Festa, miðstöð um sjálfbærni, heldur upp á afmæli. Elva Rakel Jónsdóttir og Ketill Berg Magnússon hafa bæði verið framkvæmdastjórar Festu og þau komu til okkar.
Þóroddur Bjarnason prófessor kom líka til okkar og ræddi um atkvæðavægi og atkvæðamisvægi. Um réttlæti í kosningakerfinu og leiðir til að gera það réttlátara.
Sextíu ára afmæli Sjónvarpsins var líka á dagskrá. Sextíu ár eru í dag síðan útsendingar Sjónvarpsins hófust. Við töluðum um upphafið - og ekki síður ástæður þess að lagt var af stað. Hvaða hlutverki átti íslenskt sjónvarp að gegna? Rúnar Gunnarsson, sem lengi vann hjá Sjónvarpinu og gegndi þar ýmsum stöðum, var síðasti gestur okkar.
Tónlist:
Bítlarnir - Eleanor rigby.
Kraftwerk - Das model.
Hljómar - Ertu með?.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.