Morgunvaktin

Sögulegur fundur, göng um Reynisfjall og skák

Á morgun munu leiðtogar Kína, Rússlands og Bandaríkjanna hittast í fyrsta sinn á sögulegum fundi. Já hann er sögulegur fyrir þær sakir að hann verður, þó að ekki sé alveg ljóst um hvað leiðtogarnir ætla að tala eða hvað kemur út úr honum. Við ræddum fundinn og samskipti þessara ríkja við Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands.

Á dögunum hittist áhugafólk um jarðgöng undir Reynisfjall og fór yfir málið. Næsta skref er að safna peningum til rannsókna og þróunar. Einar Kristján Jónsson, forsvarsmaður Vegferðar og fyrrverandi sveitarstjóri, sagði frá.

Svo settumst við að tafli – og spjalli – um Friðrik Ólafsson stórmeistara. Minningarmót um hann fer fram í Reykjavík í næstu viku. Gauti Páll Jónsson skákmaður og kennari kom til okkar.

Tónlist:

Willie Nelson - Georgia on my mind.

Willie Nelson - The wall.

Linn, Kira, Linntett - Solitude.

Kristinn H. Árnason - Mallorca op. 202.

Valentina Singers - Morgonsång.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,