
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við ræðum um Reykjavíkurflugvöll í dag. Völlurinn er umdeildur og sterkar skoðanir eru meðal fólks um hann. Samtökin Hljóðmörk voru stofnuð fyrir tveimur árum síðan af íbúum í nágrenni vallarins. Þau eru ekki mótfallin áætlunarflugi eða sjúkraflugi á flugvellinum, heldur segja þrjár af hverjum fjórum flughreyfingum yfir heimilum fólks vera af öðrum toga og eigi ekki að vera á þessum stað. Daði Rafnsson og Manda Jónsdóttir stjórnarmenn í Hljóðmörkum komu til okkar.
Eftir Morgunfréttir fór Arthúr Björgvin Bollason yfir þýsk málefni. Hann sagði meðal annars frá því í hvaða fylki Þýskalands hamingjusömustu Þjóðverjarnir búa. Og Jurgen Klopp fótboltaþjálfari kom nokkuð við sögu.
Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um einhverfu og einhverft fólk. Stefanía Hulda Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna, og Sigrún Birgisdóttir ráðgjafi komu til okkar.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.