Morgunvaktin

Hitaveituvæðing, Berlínarspjall og máltækni

Öld er í dag síðan mikilvægt skref var stigið í átt að hitaveituvæðingu húsa í Reykjavík og nágrenni. Á fundi Verkfræðingafélagsins fluttu tveir menn erindi þar sem segja má að grunnur hafi verið lagður að hitaveitu Reykjavíkur. Þráinn Friðriksson, jarðfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, þekkir þessa sögu og rifjaði upp.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá þýska söngvaskáldinu Wolf Biermann í Berlínarspjallinu í dag. Biermann varð níræður um helgina, en í hugum Þjóðverja er ævisaga hans samofin örlögum Þýskalands, bæði sundrung og sameiningu landsins. Við heyrðum tónlist og fórum yfir sögu hans.

Við héldum svo áfram að tala um íslensku. Á degi íslenskrar tungu í gær var hleypt af stokkunum nýju átaki til að hvetja tæknirisann Apple til að bjóða upp á íslensku í tækjum sínum og lausnum. Lilja Dögg Jónsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms fór yfir þetta með okkur.

Tónlist:

Tómas R. Einarsson, Eyþór Gunnarsson - Hlíð.

Wolf Biermann - Ermutigung.

Wolf Biermann - Und als wir ans ufer kamen.

Wolf Biermann - Warte nicht auf bessere zeiten.

Megas - Þú bíður (allavegana) eftir mér.

Megas - Undir rós.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,