Morgunvaktin

Fornbréfasafn Árna Magnússonar, rafvæðing flutningabíla og leitin að aðalritara SÞ

Við blöðuðum í gömlum bréfum; bréfum sem Árni Magnússon safnaði á sínum tíma og segja nokkra sögu um lífið í landinu á nokkuð löngu tímabili - löngu liðnu auðvitað. Þórunn Sigurðardóttir fræðimaður hefur unnið að gagnagrunni um fornbréfasafn Árna Magnússonar og hún sagði okkur frá.

Þolir íslenska raforkukerfið rafmagnsflutningabíla? Að þessu er spurt í nýrri rannsókn sem gerð var við Háskólann í Reykjavík. Rannsakendur reiknuðu út hvaða áhrif orkuskipti í flutningum hefði á kerfið hér á landi, þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar. Hlynur Stefánsson og Eyjólfur Ingi Ásgeirsson prófessorar við Háskólann í Reykjavík sögðu frá niðurstöðunum.

Það gengur erfiðlega að velja arftaka Portúgalans Antonio Guterres, sem lætur af embætti aðalritara Sameinuðu þjóðanna um áramót. Tveir frambjóðendur hafa bæst við síðan við fórum síðast yfir stöðu þessara mála fyrir tæpum mánuði síðan, en enginn hefur tekið afgerandi forystu. Enn gætu svo frambjóðendur bæst við. Vera Illugadóttir fór yfir þetta.

Tónlist:

Duke Ellington og Johnny Hodges - Loveless love.

Bla Pahinui - Gabby kai.

Loreena McKennitt - Night ride across the Caucasus.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,