Morgunvaktin

Demókratar með stórsigur og yfirlýsing um samfélagsmiðla

Demókratar unnu meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins í kosningunum í gær. Við fórum yfir úrslitin og það sem er framundan í Bandaríkjunum með Svanhildi Þorvaldsdóttur, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Ný yfirlýsing leiðtoga Norðurlandanna um tækni og börn vakti athygli. Þeir lofa að grípa í taumana. Við ræddum um efni yfirlýsingarinnar þegar Skúli Bragi Geirdal, hjá Netöryggismiðstöð Íslands, kom til okkar.

Tónlist:

Simon and Garfunkel - America.

Kacey Musgraves - Weekend in Texas.

Philipp Fankhauser - Rainy night in Georgia.

Dickow, Tina - Brev hjem.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,