Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Fótbolti, búkolla og Hildigerður frá Bingen

Enska knattspyrnuliðið Manchester City var í vikunni fundið sekt um meiriháttar fjármálamisferli um margra ára skeið. Liðið hefur daginn í dag til að áfrýja þessu máli, sem náið er fylgst með og haldið fram að gæti hreinlega breytt fótboltanum til frambúðar. Björn Berg Gunnarsson fjármála- og fótboltasérfræðingur ræddi við okkur um málið og það hvenær peningarnir fóru að flæða svona um íþróttina.

Ritið Byggðir og bú í Suður-Þingeyjarsýslu geymir merka sögu jarða og ábúenda; húsakost og búfjárhald í þessari stærstu sýslu landsins. Ritið, sem heimamenn kalla Búkollu, kom fyrst út fyrir rúmum sextíu árum og nú er fjórða bindi komið út. Við slógum á þráðinn til Jónu Bjargar Hlöðversdóttur, bónda á Björgum í Út-kinn, og spjölluðum um þær miklu breytingar sem orðið hafa á búskaparháttum Þingeyinga á rúmri hálfri öld.

Svo var það sígilda tónlistin með Magnúsi Lyngdal. Við heyrðum í dag tónlist frá elleftu öld. Þá var á dögum Hildigerður frá Bingen, abbadís, fjölfræðingur og tónskáld. Við ræddum um hana og verkin hennar.

Tónlist:

Kristjana Arngrímsdóttir - Hauströkkur.

Oasis - Stand by me.

Diddi og Reynir - Suður um höfin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,