
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við sjáum hluti misskýrt fyrir okkur og eigum reyndar misgott með að sjá fyrir okkur hluti.
Ímyndum okkur epli – margir hlustendur sjá eflaust fyrir sér rauðan og girnilegan ávöxtinn en sumir eiga í vandræðum með að kalla fram mynd af epli í huganum.
Íslenskir vísindamenn hafa þróað leið til að skilja betur hvers vegna fólk á í vandræðum með að kalla fram hugsýnir. Heiða María Sigurðardóttir prófessor við Háskóla Íslands og Árni Gunnar Ásgeirsson dósent við Háskólann á Akureyri sögðu frá.
Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá mótmælum í Þýskalandi um helgina, það sauð upp úr í að minnsta kosti tveimur borgum, og sagði sögur frá eyjunni Krít.
Þó að einkabílar séu enn lang algengasti ferðamátinn á höfuðborgarsvæðinu væri þriðji hver ökumaður til í að komast með öðrum hætti í vinnuna. Það eru þó ýmsar hindranir í veginum fyrir því. Við töluðum um ferðavenjur í síðasta hluta þáttarins, Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur kom til okkar.
Tónlist:
Tommy Dorsey and his Orchestra, Frank Sinatra - Night and day.
Lee Hazlewood og Nancy Sinatra - Summer wine.
Spilverk þjóðanna - Aksjónmaður.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.