Í Fram og til baka þennan morguninn fengum við góðan gest, nefnilega sómadrenginn Aðalbjörn Tryggvason sem er útvarpsmaðurinn á rokkstöðinni X-inu og fer fyrir rokksveitinni Sólstöfum. Hljómsveitin Sólstafir hefur verið starfandi á þriðja áratug og á sér risastóran áhangendahóp um allan heim. Aðalbjörn, eða Addi, deildi með hlustendum fimm hlutum sem eru honum afar kærir. Hlutirnir tengdust æsku hans, rokklífinu og nýju lífi sem faðir, lífi í fullum fókus án aukaefna og nýjum vettvangi í framleiðslu íslensk náttúruilmvatns fyrir öll kyn.
Í seinni hluta þáttar var boðið upp á áhættuatriði þegar þáttastjórnandi lagði af stað úr Efstaleiti í hringferð um tónlistarlandið Ísland - á 33 snúningum. Tónlist alls staðar að af landinu, frá Akranesi, Stykkishólmi, Vestfjörðum, Eyjafirði og Húsavík. Hraðferð yfir Austfirðina, Suðurlandsundirlendið, Reykjanes og endað í Breiðholtinu. Allt var þetta gert á löglegum hraða.
Hér er lagalistinn:
Frá kl. 08-09:
Elton John - Daniel.
Sólstafir - Ísafold.
Hljómar - Ástarsæla.
Hringferðin frá kl. 09-10:
Dúmbó og Steini - Frækorn og flugur.
Vinir vors og blóma - Frjáls.
Jón Kr. og Gísli Ægir - Ég er frjáls.
Geirmundur Valtýsson - Nú er ég léttur.
Árný Margrét - Verum í sambandi.
Stuðkompaníið - Þegar allt er orðið hljótt.
Ljótu hálfvitarnir - Förum hringinn.
Bloodgroup - Hips Again.
Drangar - Bál.
Júníus Meyvant - Gold laces.
Kristjana Stefánsdóttir og Sólskuggarnir - Reykjavíkurblús.
Fríða Dís - Myndaalbúm.
Hljómsveitin Ég - Tíu fingur og tær.