Fram og til baka var á plötubúðanótum á Degi plötubúðanna og gestur þáttarins bauð upp á Fimmu í formi hljómplatna. Sigrún Skaftadóttir er plötusnúður og vert á veitingastaðnum Krónikunni á Gerðarsafni í Kópavogi þar sem boðið er upp á smurbrauð og kökur. Sigrún sagði hlustendum frá þeim plötum sem mótuðu hana frá æsku, allt frá baráttusöngum á borð við Ísland úr Nato - herinn burt yfir í sænsku poppdrottninguna Robyn.
Í seinni hluta þáttarins heyrðum við í Rögnvaldi Braga, tónlistarmanni og fyrrum eiganda Pinkuponsulitlu plötubúðarinnar á Akureyri en hún heyrir því miður sögunni til og Rögnvaldur hefur að mestu snúið sér að tónlist í streymi. Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og sitthvað dregið fram úr plötuskáp æskunnar hjá umsjónarmanni þáttarins auk annarra léttra og huggulegra tóna sem leiknir voru af hljómplötum í tilefni dagsins.
Hér er lagalisti þáttarins:
The Beatles - The Long And Winding Road.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Og co ...
Joni Mitchell - Both Sides Now.
Robyn - Dancing On My Own.
Kjarabót, Pálmi Gunnarsson - Fylgd.
Linda Ronstadt - Blue Bayou
Unun - Ást í viðlögum
Dægurlagahljómsveitin Húfan - Viltu með mér vaka í nótt
Hylur - Disaster
Demis Roussos - My Friend the Wind
Laufey - Street by Street
Pixies - Monkey gone to Heaven
Bill Withers - Lovely Day