• 00:02:39Ömmu- og afanámskeið
  • 00:23:59Skólp og fráveita á Vesturlandi
  • 00:43:40Gloppuskýrsla UNEP

Samfélagið

Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum

Verðandi eða nýbakaðir foreldrar fara stundum á ýmis námskeið; tengslanámskeið, svefnnámskeið, brjóstagjafarnámskeið og svo framvegis - en hvað með ömmur og afa? Þurfa þau fara á námskeið? Við ræðum við Sveindísi Önnu Jóhannsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa, sem hefur haldið sérstök námskeið fyrir ömmur og afa. Í þessu kristallast líka samskipti kynslóðanna sem hafa verið til umræðu í Samfélaginu undanfarið.

Síðan ætlum við komast því hvað verðum um skólp eftir það fer niður um niðurfallið eða klósettrörið. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, fékk Þorstein Narfason, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlists Vesturlands, í heimsókn í hljóðver RÚV á Borgarnesi, til fræðast um fráveitukerfi sveitarfélaga og náttúrulegar lausnir á hreinsun skólps.

Í síðustu vika gaf umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna út hina árlegu gloppuskýrslu, sem fjallar um árangur ríkja heims í baráttunni gegn loftslagsbeytingum - eða kannski öllu heldur árangursleysi. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, rýnir í skýrsluna í pistli dagsins og setur hana í samhengi við komandi kosningar.

Tónlist og stef:

Teitur Magnússon - Orna.

STEREOLAB - Captain Easychord.

Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).

ÁSGEIR TRAUSTI - Afterglow.

Frumflutt

31. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,