Úr íslensku tónlistarlífi

Þjóðlög og sönglög, sungin og leikin og flaututónlist með og án flautu

Tónlistin í þættinum:

Í nafni þínu, útsetning eftir Hafliða Hallgrímsson á íslensku þjóðlagi, ljóðið er eftir Hallgrím Pétursson. Verkið er úr lagaflokknum Syrpa fyrir rödd, klarínett og píanó eftir Hafliða. Flytjendur: Tríó VEI (Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran; Einar Jóhannesson, klarinett og Valgerður Andrésdóttir, píanó). Hljóðritun gerð við setningu Myrkra músíkdaga árið 2011.

Vökuró eftir Jórunni Viðar í útsetningu fyrir sópran, píanó og trompet. Ljóðið orti Jakobína Sigurðardóttir. Íris Björk Gunnarsdóttir sópran syngur, Herdís Ágústa Linnet leikur á píanó og Ingibjörg Ragnheiður Linnet leikur á trompet. Hljóðritað á tónleikunum Trompetinn & mannsröddin, á tónlistarhátíðinni Seiglu 2024. Þorgrímur Þorsteinsson hljóðritaði.

Rapsódía yfir íslenzk þjóðlög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þórarinn Stefánsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Einleiksverk fyrir píanó árið 2025.

Þrjú tilbrigði við Liljulagið (2000) eftir Gunnar Andreas Kristinsson. Verkið er í 3 þáttum:

1. Perpetuum mobile

2. Adagio

3. Rondo

Christian Præstholm leikur á orgel. Útgefið á plötunni Patterns árið 2013.

III. þáttur, Siciliano úr Flautusónötu í E-dúr BWV 1035 eftir Johann Sebastian Bach í útsetningu eftir Kristján Tryggva Martinsson, sem leikur sjálfur á hljómborðshljóðfærið keybird.

Flautukvartett í D dúr, K. 285 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.

Verkið er í þremur þáttum:

I. Allegro

II. Adagio

III. Rondeau

Emilía Rós Sigfúsdóttir leikur ásamt Strokkvartettinum Sigga. Hljóðritað á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Norðurljósum Hörpu vorið 2026.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Þættir

,