Tengivagninn

Heyrðu mig, Jose Luis er Andervel, Anaxagóras og íslenskan

Við byrjum þáttinn á sagnfræðilegum fróðleik í boði Illuga Jökulssonar, sem segir okkur frá Anaxagórasi, fæddum 500 fyrir Krist, sem bjó til kenningar um meðal annars, sólmyrkva.

Svo er rætt við tónlistarmanninn Andervel. Nýlega kom út platan Ironclad and Palm trees. Bárujárn og pálmatré. Þetta er fyrsta plata tónlistarmannsins en titillinn er annars vegar vísun í bárujárnið sem klæðir húsin í Reykjavík og hins vegar pálmatré sem stóð í garði ömmu hans í Mexíkó, þar sem hann ólst upp.

Við hittum mæðgurnar Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Diljá Sveinsdóttur, sem eru klára undirbúa sig undir frumsýningu á nýju dansverki, Heyrðu mig, sem verður sýnt á Ásmundarsal. Sveinbjörg er höfundur verksins, og er það samið um líf þeirrar Diljáar, sem dansar í verkinu. Diljá fæddist heyrnalaus en fékk síðar heyrn með aðgerð og heyrnatækjum og er lífsreynsla kveikjan verkinu.

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur sinn síðasta pistil um tenginguna milli Írlands og Íslands, og sömuleiðis Arndís Þórarinsdóttir, um íslenskuna.

Birt

13. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,