Tengivagninn

Örn Karlsson og Villistrákarnir, hinsegin kvikmyndir, bókameðmæli úr Grafarvogi

Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir.

Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.

Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, mælir með nokkrum höfuðverkum hinsegin kvikmyndasögu, og dregur fram þá hinsegin leikstjóra sem hafa skarað fram úr.

lokum heimsækir Pétur Magnússon bókabúðina í Hverafold í Grafarvogi, og fær bókameðmæli frá eiganda hennar Pétur Viðarsson.

Birt

11. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,