Tengivagninn

Almyrkvi í beinni á Echolalia

Við verjum aðdraganda almyrkvans í hópi tónleikagesta á Echolalia, reivi og listahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Sólmyrkvahátíðin er skipulögð af Björk og er samstarf við Listasafn Íslands, en þar stendur uppi sýning á verkum hennar með sama nafni, og Smekkleysu, sem fagnar 40 ára afmæli á árinu.

Sólmyrkvinn var ekki sjáanlegur frá Víðistaðatúni, en við upplifum myrkrið, stystu nótt lífs okkar, í grennd við sviðið, þar sem Björk steig svo á svið strax og hafði birt aftur, og hóf spila sitt sett við mikinn fögnuð tónleikagesta.

Birt

12. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,