Tónlistin í þættinum:
Í stundarheimi eftir Snorra Sigfús Birgisson. Snorri Sigfús leikur sjálfur á píanó.
Tónverkið Í stundarheimi (In a Fleeting World) fyrir píanó var samið 2023/2024 til minningar um Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara. Höfundur
frumflutti verkið í Fríkirkjunni í Reykjavík 2. mars 2024. Þessi hljóðritun kom út árið 2025.
Die Lauberhütte, úr ljóðaflokknum Johannes und Esther (1826) eftir Friedrich Theodor Fröhlich. Ljóðið orti Wilhelm Müller. Ian Bostridge, tenór syngur, Julius Drake leikur á píanó.
Upptaka fór fram í apríl 2024 í Allra heilagra kirkju, í Austur-Finchley, Lundúnum.
Fiðlukonsert í e-moll op. 64 eftir Felix Mendelssohn Bartholdy.
Þættir verksins eru:
I. Allegro molto appassionate
II. Andante
III. Allegro molto vivace
Janine Jansen leikur á fiðlu með Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig. Stjórnandi er Riccardo Chailly.
Hugsa jeg það hvern einn dag, lag og texti úr Hymnodiu í útsetningu eftir Huga Guðmundsson. Melodia - kammerkór Áskirkju syngur undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.
Útgefið 2015 á plötunni Melodia - Íslensk þjóðlög í útsetningum samtímatónskálda.