
Sígild og samtímatónlist
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Allerseelen, Op. 10, nr.8 (Allra sálna dagur) eftir Richard Strauss úr söngljóðasafninu Letzte Blätter. Ljóðið orti Hermann von Gilm. Kirsten Flagstad sópran syngur, Edwin McArthur leikur á píanó. Af plötunni Sunday Night Concert at the MET, 1987.
Pensiero í f-moll, H. 53 nr. 1 eftir Frank Bridge. Timothy Ridout leikur á víólu og Frank Dupree á píanó. Útgefið á plötunni A Lionel Tertis Celebration, 2024.
La muerte del Angel eftir Astor Piazzolla í útsetningu eftir Hrafnkel Orra Egilsson. Kordo kvartettinn leikur (Vera Panitch, fiðl ; Páll Palomares, fiðla; Þórarinn Már Baldursson, víóla og Hrafnkell Egilsson, selló). Georg Magnússon hljóðritaði fyrir RÚV á tónleikunum: Piazzolla, Olivier og Kordo, í tónleikaröðinni Tíbrá í Salnum í Kópavogi, árið 2021.
Requiem eftir Jón Leifs, ljóðið orti Jónas Hallgrímsson. Schola cantorum syngur, Hörður Áskelsson stjórnar. Útgefið á plötunni Meditatio árið 2016.
Pater noster (Faðir vor) eftir Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur. Kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Útgefið á plötunni IN CAELO ET IN TERRA, 2026.
Iepo oneipo (Heilagur draumur) eftir John Tavener, samið við býsanskan texta. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran syngur ásamt Kammerkór Suðurlands og hljóðfæraleikurum. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Útgefið á plötunni Iepo oneipo - Heilagur draumur, árið 2010.
Nüüd südant, inimene (Hlustið, þið synir manna) - Eistneskur þjóðsálmur. Útsetning eftir Tui Hirv og Pál Ragnar Pálsson, og það eru þau sem flytja. Útgefið á plötunni Layers, árið 2026.
Litanía D.343 (Litanei auf das fest allerseelen) eftir Franz Schubert. Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó. Útgefið á plötunni Ljóð án orða árið 1997.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.