Gasolin + Kevin Cole og íslensk tónlist og útvarp
Í Rokklandi vikunnar tökum við upp þráðinn þaðan sem frá var horfið fyrir viku með Bandaríska útvarpsmanninum Kevin Cole frá KEXP sem hefur komið reglulega til Íslands undanfarin 20…
Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga, Magnus Stephensen ofl.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson