
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Gréta Ólafsdóttir heimildamyndagerðarkona hefur starfað við kvikmyndagerð með sambýliskonu sinni Susan Muska í yfir þrjátíu ár. Saman reka þær framleiðslufyrirtækið Bless bless. Þeirra fyrsta verk saman fjallaði um hatursglæp og fjöldamorð í Nebraska, sem framið var á ungum trans manni, Brandon Teena og tveimur vinum hans. Gréta flutti erlendis í nám fljótlega eftir menntaskóla og hefur stærstan hluta ævinnar búið erlendis, í San Fransisco, New York og Frakklandi. Við heyrum sögu hennar og um nýja mynd, Háhitasvæði, sem verður frumsýnd í vikunni í Bíó Paradís.
Við mælum okkur mót við Elís Aldan Guðnason sem í ár skrifaði meistaraverkefni í Umhverfis- og auðlindafræði. Þar skoðar hann hvernig loftslagshamfarir birtast í sviðsetningu og viðtökum nokkurra harmleikja sem hafa farið á fjalir í íslenskum síðustu ár. Í viðtalinu varpar hann fram spennandi hugmynd, þurfum við kannski bara á loftslagsprest að halda?

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.