Beðið eftir Grand Theft Auto VI
Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin…
Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja gallað en aðrir óheiðarlegt. Við ræðum við Sigmund Halldórsson, sérfræðing hjá VR, um algrími á íslenskum vinnumarkaði.
Katrín Helga Ólafsdóttir kíkti í heimsókn á vinnustofu tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu.
Nýr pistlahöfundur, rithöfundurinn Birgitta Björg Guðmarsdóttir, fjallar um einkarými í lok þáttar.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.