
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Z-kynslóðin mótmælir nú í Evrópu eftir bylgju mótmæla ungs fólks víða um heim á undanförnum árum. Það var í september sem mótmæli nemenda gegn lélegum aðbúnaði í skóla sínum í Suðaustur-Frakklandi hröttu af stað mótmælahreyfingu menntaskólanema í landinu. Mótmælin hafa breiðst út og núna um helgina náðu þau hámarki þegar meira en hálf milljón manna fór út á götur Parísar og annarra borga Frakklands. Það kom til harðra átaka og ýmis konar skemmdarverk framin. Í Lestinni dag ætlum við að skoða tákn Z-kynslóðar mótmælendanna í Frakklandi og víðar, sem gjarnan eru fengin úr internetmenningu, og förum yfir önnur einkenni sem mynda rauðan þráð milli mótmæla sem fara fram á mjög ólíkum stöðum.
Svo er það bíó um sjónvarp. To catch a predator nefndust vinsælir þættir sem sjónvarpsmaðurinn Chris Hansen stýrði í upphafi aldarinnar – en þar var notast við tálbeitu til að koma upp um fullorðna menn sem héldu að þeir væru að fara að hitta einstaklinga undir lögaldri. En hversu langt er í lagi að ganga í gerð sjónvarpsefnis og í nafni skemmtunar? Að þessu er spurt í kvikmyndinni Primetime sem byggir lauslega á sögu Hansen, mynd í leikstjórn hins unga og umtalaða Lance Oppenheim. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
Við fáum pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi um augnablikið þegar gervigreindin leysti einhverjar þekktustu óleystu stærðfræðigáturnar, kláraði stærðfræðina á einu bretti og gerði þar með alla mannlega stærðfræðinga óþarfa.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.