Lestin

Airwaves-uppgjör, Fela Kuti hlaðvarp, hvaða lag fær þig til að dansa?

Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fer yfir það sem bar hæst á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár. Tónleikar með íslensku hljómsveitinni Scam og breski rapparinn The Streets í Eldborgarsal Hörpu eru þar á meðal.

Svo förum við af einni hátíð yfir á aðra. Þann 11. nóvember hefst sviðslistahátíðin Reykjavík Dance Festival. Að því tilefni heyrum við frá gangandi vegfarendum í Reykjavík hvaða lag fær þau til að dansa. Innslagið er unnið í samstarfi við Dagmar Lilju Stefánsdóttur sem verður með í Radio Bounce, útvarpsstöð sem fer í loftið á laugardaginn á FM 106.1 og er hluti af Reykjavík Dance Festival.

Kristján Guðjónsson segir frá hlaðvarpsþáttum sem fjalla um nígeríska tónlistarmanninn Fela Kuti, en hlaðvarpsþættirnir hafa vakið verskuldaða athygli. Þar er tónlist, sögu og pólitík fléttað saman á frábæran hátt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,