Glæstar vonir Siennu Spiro og Mulholland Drive 25 árum síðar
Í Lestinni í dag kryfjum við nýlegan slagara Sienna Spiro, tilfinningaþrungnu ballöðuna Great Expectations. Poppfræðingur Lestarinnar, Friðrik Margrétar-Guðmundsson fer með okkur í…
Í Lestinni í dag kryfjum við nýlegan slagara Sienna Spiro, tilfinningaþrungnu ballöðuna Great Expectations. Poppfræðingur Lestarinnar, Friðrik Margrétar-Guðmundsson fer með okkur í saumana á hráum tilfinningum og hljóðheimi bresku tónlistarkonunnar. Við hugum líka að kvikmyndum og hvernig áhorfendur skynja oft meira en þeir endilega skilja . Í næstu viku leiðir Ása Helga Hjörleifsdóttir, kvikmyndagerðarkona og dósent við kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands, námskeið um kvikmyndina Mulholland Drive, hjá Opna Listaháskólanum. Ása Helga leit við í hljóðstofu og ræddi um þetta sköpunarverk David Lynch út frá ýmsum hliðum.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.