Lestin

Karamazov-bræðurnir, Fjord og Plat Radio

Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga og eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin sem er eftir Fjodor Dostojevskí kom upphaflega út árið 1880 og fjallar um þrjá bræður, svallarann Dmítrí, hugsuðinn Ivan og dýrlinginn Aljosha, og morð á föður þeirra. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Við spjöllum við Illuga um hvernig það er að lesa upp svona stórvirki. Þetta eru 1200 útprentaðar blaðsíður, rúmlega 100 lestrar, sem eru 50 klukkutímar í hlustun.

Fjord eða Fjörður er eldfim og umdeild, margverðlaunuð mynd eftir rúmenska leikstjórann Christian Mungiu. Myndin fjallar um íhaldssama kristna norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og lendir þar í átökum við barnaverndaryfirvöld, sem finnst uppeldisaðferðir fjölskyldunnar ótækar. Kolbeinn Rastrick hefur mjög sterkar skoðanir á myndinni.

Um síðustu helgi fór í loftið ný útvarpsstöð, reyndar ekki alvöru FM-útvarpsstöð heldur Plat-útvarp. Það eru plötuútgáfan Plata og plötusnúðahópurinn Plútó sem standa að Plat Radio sem ætlar að senda út í mynd og hljóði brakandi ferska raftónlist leikna í kjallara við Hlemm. Við fáum til okkar Guðmund Arnalds og Örlyg Arnalds sem standa að stöðinni.

Við kíkjum líka á nýja útgáfu á Ódysseifskviðu og heyrum tónlist sem mun hljóma á Iceland Airwaves í næstu viku.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,