
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Heimildarmyndin You Can See Everything eftir Nathan Fielder og Lance Oppenheim er frumsýnd í vikunni. Myndin fjallar um fyrrum vonarstjörnu í nýsköpunargeiranum, Elizabeth Holmes, sem árið 2022 var sakfelld fyrir stórtæk fjársvik. Saga Holmes hefur farið víða í hlaðvörpum, sjónvarpsþáttaseríum og ógrynni fjölmiðlaumfjallana. Það er þó ekki síst leikstjórinn Nathan Fielder sem trekkir að, og einkennandi frásagnarháttur hans sem hann hefur þróað síðustu ár í heimildarmyndaþáttaröðum eins og Nathan For You og The Rehearsal. Myndin fjallar um síðustu daga Holmes með fjölskyldu sinni áður en hún þarf að afplána 11 ára fangelsdóm. Mikil eftirvænting ríkir fyrir myndinni og lestarstjórar fjalla um höfunda og viðfangsefni myndarinnar, og víðsjárvert samand þeirra á milli. Án þess að spilla neinu!
Haukur Már Helgason flytur okkur pistil um blikur á lofti á atvinnumarkaði í kjölfar örar þróunar í gervigreind. Hálfgerðar heimsendaspár úr kísildal má segja að séu reglulegur viðburður í dag og Haukur er með hugann við forsendurnar fyrir því hvernig tæknifrömuðir úttala sig um framtíðina.
Loks heyrum við í upptökustjóranum Bergi Þórissyni. Hann er meðal þeirra Íslendinga sem hlutu tilnefndingu til Grammy verðlauna í vikunni. Í flokknum Best Engineered Album, Non Classical komst á lista lag Rosalíu, Yves Tumor og Bjarkar, Berghain. Í tilnefningunni voru heil 17 nöfn listuð upp, og þar á meðal nafn Bergs. Sölvi hringdi í Berg og forvitnaðist um upptökustjórn, alþjóðlegt samstarf í tónlistargeiranum og hvort hann ætli ekki að skella sér til LA á hátíðina í febrúar.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.