
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í gjörningi sem var framinn á Nýlistasafninu um helgina voru atburðir fyrir og eftir íslenska efnahagshrunið efniviðurinn, að þessu sinni frá sjónarhorni 12 ára stúlku sem fékk ekki að fara á Reyki vegna Hrunsins. Við ræðum við myndlistarkonuna Margréti Dúa Landmark.
Einar Már Jónsson sagnfræðingur og pistlahöfundur Lestarinnar í París fjallar um frjálshyggjuna og ábyrgð stjórnmálamanna sem kynda undir útlendingaandúð.
Hvernig lítur trúboð á samfélagsmiðlum út? Nunnur í Michigan í Bandaríkjunum sem eru með hlýja og glaðlynda nærveru á samfélagsmiðlum stýra hlaðvarpi um lífið í móðurhúsinu. Vera þeirra á samfélagsmiðlum er í trúboðsskyni en systurmar eru merkilega snjallar að leika á algórythmann.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.