
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Teitur Magnússon heimsækir Lestina og spjallar um nýja breiðskífu, Askur, sem kom út í september. Teitur hefur verið í eðalsveitum eins og Ojba Rasta, Fallegum mönnum og Slugs en hefur nú gefið út fjórar breiðskífur með þjóðlagaskotinni söngvaskáldatónlist.
Gervigrein.is nefnist vefsíða sem skoðar fréttir sem birtast á íslenskum fjölmiðlum og segir notendum hversu líklegt sé að fréttin sé skrifuð af eða með aðstoð gervigreindar. Við ræðum við manninn á bakvið síðuna, Henrý Þór Jónsson.
Við hringjum til Ítalíu og heyrum um skemmdarverk á listaverki í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum. Eyðileggingin gat hins vegar bara af sér umbreytingu á verkinu. Við spjöllum við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur um vandræði sem verða að lukku.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.