
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Myndband af árás hóps ungmenna á feðga við Mjóddina í Breiðholti í september hefur vakið óhug á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir aukið eftirlit þar hafa dregið úr ólátum.
Hörð gagnrýni beinist að forsætisráðherra Danmerkur eftir ummæli sem túlkuð hafa verið sem daður við samsæriskenningu sem elur á fordómum.
Hlutabréf í Nvidia lækkuðu í dag, um sólarhring eftir endurkomu forstjórans Jensens Huangs – sem var rekinn vegna gruns um að hann hafi haldið við kínverskan njósnara.
Auglýsingatekjur hafa margfaldast hjá hlaðvörpum síðustu ár en dregist saman hjá öðrum miðlum – þrátt fyrir að hlutdeild þeirra sé aðeins fjögur prósent.
Alvilda er nýr alíslenskur samfélagsmiðill – þar sem notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Endurhæfingarsundlaugin á Sauðárkróki stendur enn tóm þrátt fyrir að sveitarfélagið bjóði níutíu prósenta afslátt af heitu vatni.

Fréttir.