Kvöldfréttir útvarps

Kvótamál smábáta - Kínaferð utanríkisráðherra - Kennarasamningar - Næringargildi barnamatar - Brothættar byggðir

Ríkisstjórnin virðist ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann segir formaður Landssambands smábátaeigenda. Honum líst vel á drög að breytingum á byggðahluta sjávarútvegsins.

Utanríkisráðherra fundaði með kínverskum starfsbróður sínum í gær. Þau ræddu meðal annars um viðskipti og alþjóðamál.

Engin tegund af barnamauki í skvísum uppfyllir næringarviðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, samkvæmt nýrri rannsókn. Dæmi eru um að leikskólabörn kunni ekki að borða með skeið þar sem þau eru vön að sjúga matinn úr skvísu.

Byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir hefur fengið nafnið Töfrar Tálknafjarðar. Málþing íbúa var haldið í plássinu í gær og í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,