Kvöldfréttir útvarps

Viðvörunarljós á vinnumarkaði, Finnar loka landamærum að Rússlandi, fjölgun svikatilrauna og gervigreindarmynd af þingmanni notuð í óþökk hans

Stjórnvöld þurfa að fylgjast náið með þróun á vinnumarkaði þar sem viðvörunarljós eru farin að loga, segir hagfræðingur BHM. Fólki sem vantar vinnu eða vill vinna meira hefur fjölgað.

Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborginni í dag og árásarþoli var fluttur á slysadeild.

Yfirvöld í Eistlandi saka Rússa um að hafa gert tilraun til að kveikja í drónaverksmiðju í landinu – og ætla að loka öllum leiðum yfir landamærin að Rússlandi.

Fjórfalt fleiri svikatilvik við millifærslur voru skráð í fyrra en tveimur árum áður, samkvæmt skýrslu Seðlabanka Íslands.

Gervigreindarmynd af þingmanni var notuð í auglýsingu á Facebook í óþökk hans. Hann hyggst skoða hvort þörf sé á skýrari lögum til að vernda rétt fólks á andliti sínu og rödd.

Sveitarstjórn Hornafjarðar hefur ákveðið að setja Gagnaveitu Hornafjarðar á sölu. Þau telja einkaaðila geta veitt betri þjónustu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,