
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Fjármálaráðherra neitar því að hafa sagt ósatt í ræðustól Alþingis þegar hann ræddi ástæður afsagnar forstjóra Landsvirkjunar. Hann telur lög ekki hafa verið brotin í samskiptum stjórnar og forstjóra.
Öryggisbrestur varð hjá Innu, námsumsjónarkerfi framhaldsskólanna, í síðustu viku, þegar framhaldsskólanemandi nýtti sér veikleika í innskráningarkerfi. Rektor segir þetta í annað sinn á þessu ári sem brotist er inn í kerfið.
Miðflokkurinn er í sókn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi annarra flokka er nánast óbreytt.
Kosningar hafa gengið vel í Bandaríkjunum í dag. Úrslitin gætu haft mikil áhrif á síðustu tvö árin á valdatíð Donalds Trump forseta, en efnahagmálin eru efst á baugi.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir
Tæknimaður: Kari Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir.