Kvöldfréttir útvarps

Rannsaka manndráp í Breiðholti - Matarpöntunum fækkar eftir verðhækkun - Vopnahlé rennur út í Úkraínu - Plast frá sjókvíum veldur mengun

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri lést af völdum áverka sem hann hlaut í Reykjavík í nótt. Lögregla hefur lagt hald á hníf sem talinn er tengjast árásinni. Þrír eru í haldi.

Matarpöntunum til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fækkaði um fimmtán prósent í september miðað við júlí. Verð máltíðanna hækkaði 1. september.

Sex daga vopnahlé í Kherson-héraði í Úkraínu rennur sennilega út í kvöld. Þetta er lengsta hlé á átökum frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás 2022.

Töluvert magn plasts berst í sjóinn frá sjókvíaeldi, samkvæmt norskum rannsóknum. Mengunin stafar bæði af plasthlutum sem losna úr eldiskvíum og örplasti sem myndast þegar fiskfóður skrapar innan úr fóðurrörum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,