Kvöldfréttir útvarps

Spenna í kjaradeilu flugmanna, áskorarnir í heilbrigðiskerfinu, slökkvilið kveikti í húsi og fyrsta asíska Eurovision-keppnin

Aukin spenna virðist tekin að færast í kjaradeilu Icelandair og stéttarfélaga flugmanna og flugvirkja. Félögin draga samningsvilja flugfélagsins í efa sem forstöðumenn þess segja ekki standast.

Lögregla handtók þrjá á veitingastað í Reykjavík á fimmtudag sem störfuðu sem leiðsögumenn án starfsleyfis. Lögregla reynir í auknum mæli að sporna við slíku.

Rannsaka þarf betur hvort bólusetningar við ristli dragi úr líkum á heilabilun, segir heilbrigðisráðherra. Miklar áskoranir blasi við heilbrigðiskerfinu þegar þjóðin eldist.

Slökkviliðsmenn í Borgarbyggð sinntu heldur óhefðbundnu verkefni í dag – þegar þeir kveiktu í húsi í æfingarskyni.

Söngkonan Carmelle frá Filippseyjum sigraði í asísku Eurovision-keppninni, sem var haldin í fyrsta sinn í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,