Kvöldfréttir útvarps

Tölvuárás á íslenskt vefhýsingarfyrirtæki, Rússa vísað frá Danmörku, spennu hleypt á Suðurnesjalínu 2, franskur leikari og franskur rithöfundur sakaðir um nauðgun

Glíma vefhýsingarfyrirtækisins 1984 við tölvuárás var eins og að berjast við björn, að sögn framkvæmdastjórans. Hann segir verulegt fjármagn hafa þurft til að fremja árásina.

Danir vísa rússneskum diplómata úr landi vegna gruns um að rússneska leyniþjónustan hafi fengið tvo danska glæpamenn til að ráða úkraínskan rappara af dögum.

Spennu var hleypt á Suðurnesjalínu 2 í dag. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir suðurnesjalínu þrjú þegar vera tímabæra.

Tveir landsfrægir Frakkar, rithöfundur og leikari, hafa verið kærðir fyrir að nauðga konu við tökur á kvikmynd árið 2018. Leikstjórinn er sakaður um óbeina aðild.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,