Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, ASÍ og veðurtjón á Siglufirði
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag. Hann er þó enn félagi í flokknum og styður ríkisstjórnina.
Leyfi Kaldvíkur til að reka sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Framkvæmdastjóri hjá Kaldvík segir fyrirtækið vilja eiga gott samtal við íbúa.
Öll sex sem voru ákærð í Reykholtsmálinu voru sakfelld í dag. Þau voru dæmd í fangelsi frá sex mánuðum upp í átta ár.
Bresk stjórnvöld telja nær fullvíst að Íran hafi staðið á bak við uppákomuna við herstöð þar í landi í september. Íranar neita sök.
Erfitt verður fyrir almenning á Grænlandi að treysta Bandaríkjunum þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst um varnarmál. Grænlenskir þingmenn ræddu um samninginn í dag.

Fréttir.