Kvöldfréttir útvarps

Árás í Mjóddinni, forsætisráðherra Danmerkur gagnrýndur, lækkun hlutabréfavirðis Nvidia og alíslenskur samfélagsmiðill

Myndband af árás hóps ungmenna á feðga við Mjóddina í Breiðholti í september hefur vakið óhug á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir aukið eftirlit þar hafa dregið úr ólátum.

Hörð gagnrýni beinist að forsætisráðherra Danmerkur eftir ummæli sem túlkuð hafa verið sem daður við samsæriskenningu sem elur á fordómum.

Hlutabréf í Nvidia lækkuðu í dag, um sólarhring eftir endurkomu forstjórans Jensens Huangs – sem var rekinn vegna gruns um að hann hafi haldið við kínverskan njósnara.

Auglýsingatekjur hafa margfaldast hjá hlaðvörpum síðustu ár en dregist saman hjá öðrum miðlum – þrátt fyrir að hlutdeild þeirra sé aðeins fjögur prósent.

Alvilda er nýr alíslenskur samfélagsmiðill – þar sem notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

Endurhæfingarsundlaugin á Sauðárkróki stendur enn tóm þrátt fyrir að sveitarfélagið bjóði níutíu prósenta afslátt af heitu vatni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,