Kvöldfréttir útvarps

Frávik í brunavörnum stofnana, sprengjuhótanir, afstaða nýs forsætisráðherra Bretlands til Brextir og heimildarmynd vinsælust í bíóhúsunum

Yfir þúsund frávik fundust við úttekt á brunavörnum hjá ríkisstofnunum þar sem fólk er lokað inni, í haldi eða vistun – þar af hátt í fjögur hundruð alvarleg frávik.

Keflavíkurflugvöllur og Háskóli Íslands eru meðal stofnana sem fengu sprengjuhótun í dag. Lögregla fylgist grannt með en telur ekki ástæðu til frekari aðgerða.

Forsætisráðherra Bretlands segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði.

Bág fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands vegur þungt í áformum um sameiningu þess við Náttúrufræðistofnun. Uppsafnaður halli safnsins í fyrra nam nær 420 milljónum króna.

Heimildarmynd um frumkvöðul úr Kísildal, sem var dæmd í fangelsi fyrir stórfelld fjársvik, er vinsælasta myndin í bíóhúsum landsins. Aldrei hafa fleiri séð heimildarmynd um frumsýningarhelgi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,