Kvöldfréttir útvarps

Krafa um hagræðingu hjá Orkuveitunni, óbreyttir stýrivextir, stendur við hallalaus fjárlög, nýr forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ný útgáfa af GTA kemur út á miðnætti

Uppsagnir eru ekki á dagskrá Orkuveitu Reykjavíkur að sögn stjórnarformanns, þrátt fyrir tilmæli borgarstjóra um að nauðsynlegt sé að hagræða í rekstri fyrirtækisins.

Stýrivextir Seðlabankans verða átta prósent fram á næsta ár en tilkynnt var í morgun að þeim yrði haldið óbreyttum.

Formaður Viðreisnar segir að ríkisstjórnin ætli að reka ríkissjóð með afgangi þrátt fyrir spár Seðlabankans um annað.

Allt stefnir í að Hakeem Jeffries verði fyrsti svarti þingmaðurinn til að gegna valdamiklu embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.

Metnaðarfullur, byltingarkenndur og biðarinnar virði. Þannig lýsa gagnrýnendur tölvuleiknum GTA 6. Leikurinn kemur út á Íslandi á miðnætti.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,