
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Framkvæmdastjóri Neyðarlínu segir tæknibilun í hugbúnaði hafa valdið því að ekki var hægt að hringja í einn einn tveir í um klukkustund síðdegis.
Lokað er fyrir umferð um Öxnadalsheiði og Langadal vegna illviðris á Norðurlandi. Viðvaranir vegna hríðar verða í gildi víða um landið þar til á morgun.
Microsoft hefur enn ekki staðfest hvað nákvæmlega varð til þess að milljónir manna höfðu ekki aðgang að tölvupóstinum sínum í nærri hálfan sólarhring.
Finnland verður að ganga úr NATO og engar vestrænar herveitir verða í Eystrasaltsríkjunum, samkvæmt kröfum Rússa, sem þýska dagblaðið Bild hefur heimild fyrir.
Sívaxandi eyrnasuð hefur orðið til þess að trommuleikari bresku hljómsveitarinnar Duran Duran hefur ákveðið að leggja kjuðana á hilluna fyrir fullt og allt.

Fréttir.