
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Afbrotafræðingur óttast að ofbeldi og skipulögð glæpastarfsemi þrífist í skjóli aðgerðarleysis þegar brotið er gegn lögreglumönnum. Mikilvægt sé að taka hart á brotum og heimild sé til þess í lögum.
Rússlandsher hefur drepið og sært mun fleiri almenna borgara í Úkraínu í ár en á sama tíma í fyrra. Sameinuðu þjóðirnar ítreka kröfu um að herinn hlífi almenningi.
Umboðsmaður barna segir Ísland ekki barnvænt. Bið eftir greiningum sé löng og mörg börn fái ekki stuðning.
Sérsveit ríkislögreglustjóra fær brynvarða bíla og eftirlitsgeta Landhelgisgæslunnar verður efld með rúmlega 400 milljóna króna framlagi úr ríkissjóði.
Bjössi brunabangsi heitir núna Björnis. Krafan kemur frá heimalandi hans, Noregi. Björnis er sérnafn og breytingin gengur því ekki gegn málstefnu Ríkisútvarpsins.
Freyr Alexandersson segist ekki hættur að þjálfa norska fótboltaliðið Rosenborg. Hávær kvittur var í gær um að hann væri á leið til Wales.

Útvarpsfréttir.