Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. október 2026

Stormur sem kom með látum í gær er á förum, en skilur eftir vetrarfærð á vegum víða um land. Mikið tjón varð á Siglufirði í hvassviðrinu og er til skoðunar hvort hefði átt að hækka viðvörunarstig í þeim landshluta.

Úkraínuforseti segir að hléi, sem Bandaríkjaforseti lýsti yfir, á árásum á orkuinnviði sé lokið. Úkraínumenn réðust á rússneska olíuhreinsistöð í nótt. Rússar höfðu áður ráðist á úkraínska orkuinnviði.

Öryggisráðstafanir í Reynisfjöru duga að mati sérfræðings á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu. Hættulegar aðstæður voru þar í gær og sjór gekk yfir ferðamenn, þar á meðal barn.

Tillaga um að Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, yrði forsætisráðherra í eins flokks minnihlutastjórn var felld í sænska þinginu í morgun.

Borkjarnar í Vestmannaeyjum og í Landeyjasandi þar sem til stendur að bora fyrir Eyjagöngum eru mun betri en við var búist, segir forsvarsmaður Eyjaganga.

Opinberum störfum í Norðurþingi hefur fækkað um rúm tíu prósent á tveimur árum Byggðaráð skorar á nýjan sýslumann að fjölga störfum á Húsavík.

Forseti Bandaríkjanna, segir að umfangsmikil olíuleit hefjist senn á Grænlandi. Þau mál eru þó á forræði Dana og heimamanna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,