
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Fjórðungur landsmanna hefur misst einhvern nákominn í umferðarslysi. Tólf hafa látið lífið í umferðinni á árinu. Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag.
Flug í Bandaríkjunum á að komast í samt lag í dag eftir bilunina sem lokaði lofthelginni klukkustundum saman í fyrrinótt, samkvæmt flugmálastjórn Bandaríkjanna. 1.200 flugferðum hefur verið aflýst í dag.
Hópsýkingar vegna Covid-19 hafa komið upp á tveimur deildum Landspítala. Heimsóknarbann er enn í gildi á Landakoti vegna Covid-smita þar.
Norskur metsöluhöfundur hefur gerst uppvís að notkun gervigreindar við skrif bóka sinna. Lektor í íslensku segir þetta vekja upp spurningar um hvar mörkin liggi þegar kemur að notkun tækninnar.
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vilja að samtökin Dýravaktin, sem gefa fuglum mat á hverjum degi yfir vetrartímann, dragi úr starfseminni. Formaður samtakanna segir að þau ætli ekki að verða við því.
Sniglaræktun fer að hefjast í Reykholtsdal í Borgarfirði. Ræktendur hafa tröllatrú á verkefninu og stefna að útflutningi á sniglum.

Útvarpsfréttir.