
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Börnum er hótað og þau neydd til að senda kynferðislegar myndir af sér á samfélagsmiðlum. Það hefur ekki síður alvarlegar afleiðingar en annað ofbeldi, segir talskona Stígamóta.
Stjórnvöld hafa fallið frá áformum um tveggja komma átta milljarða króna þak á auglýsingatekjur RÚV.
Úkraínuforseti er ánægður með gang friðarviðræðna Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Abú Dabí.
Akureyringar setja spurningamerki við nýja flugleið Icelandair frá Akureyri til Tenerife, forsvarsmenn fyrirtækisins útiloka ekki fleiri áfangastaði.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar í meðgönguvernd geta nú pantað rannsóknir í eigin nafni í stað þess að skrá þær á lækna. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir þetta löngu tímabært.
Faðirvorið gæti hljómað öðruvísi á dönsku frá og með næsta ári ef prufuþýðing danska biblíufélagsins verður tekin upp.
Við tölum líka um nægjusemi í kringum alla tilboðsdagana í nóvember og svo er það leikur kvennalandsliðsins í körfubolta gegn Írum í kvöld.

Útvarpsfréttir.