Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. nóvember 2026

Allt flug um Bandaríkin var kyrrsett í rúmar fjórar klukkustundir í gærkvöld og nótt vegna bilunar í flugumsjónakerfi. Yfirvöld fullyrða að hvorki netárás né gervigreind hafi orsakað bilunina.

Björgunaraðgerðir í norðanhríðinni sem gekk yfir landið í gær og nótt gengu vel, segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Uppsjávarskip losnaði næstum frá bryggju á Akureyri og bændur og björgunarsveitarmenn nærri Blönduósi grófu vel á annað hundrað fjár úr fönn í morgun.

Forseti Úkraínu segir þær kröfur sem Rússar gera um breytingar á öryggismálum í Evrópu hættulegar. Þá hafa Bandaríkjamenn lagt til að Úkraína gangi í NATO gegn því að gefa eftir landssvæði.

Um fjögur þúsund nýir hluthafar bættust í hluthafahóp Bláa lónsins í útboði sem lauk í gærkvöldi. Eftirspurn var um einum milljarði króna meiri en framboðið. Framkvæmdastjórinn segir þetta fagnaðarefni, bæði fyrir félagið og ferðaþjónustuna.

Karlalandslið Íslands í fótbolta steig stórt skref í átt að því að komast upp úr C-deild Þjóðadeildar Evrópu í gærkvöldi þegar liðið fór létt með Búlgaríu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,