
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Alvarleg tölvuárás var gerð á fyrirtækið 1984 í morgun. Það þjónustar stóran hluta íslenskra vefsíðna. Framkvæmdastjórinn segir ljóst að efnamenn séu á bak við árásina.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa í tólf daga ekki getað híft fólk um borð vegna bilunar í sigbúnaði.
Pútín lét verða af hótunum sínum og Rússlandsher gerði harðar árásir á Úkraínu í nótt og drap átta manns. Eitt flugskeytanna lenti í Póllandi.
Bæjarstjóri Grindavíkur býst við að leit að Lúðvíki Péturssyni geti hafist aftur í vor. Allt kapp verði lagt á að endurheimta lík Lúðvíks.
Hlutabréf Bláa lónsins féllu um tíu krónur við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Stjórnarformaður lónsins segir áhuga erlendra fjárfesta á hlutafjárútboðinu hafa verið minni en vonast var til.

Útvarpsfréttir.