Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13. nóvember 2026

Norðanhríð gengur yfir landið í dag. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi fram undir hádegi á morgun. Veðrið hefur áhrif á samgöngur.

Tölvupóstur er farinn að berast notendum Outlook eftir víðtækar truflanir á þjónustu Microsoft víða um heim. Fyrirtækið útilokar að netárás hafi valdið truflunum.

Leiðtogar Evrópusambandsins ræða í dag hverjir eigi að vera í forsvari fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu. Rússar hafa ekki samþykkt þátttöku Evrópuríkja.

Fjármálaráðherra segir að hlustað verði á Grindvíkinga sem gagnrýna áætlanir fasteignafélagsins Þórkötlu um endursölu eigna í bænum.

Formaður Landverndar segir að ríkisstjórnin ætli að láta náttúruna borga fyrir hagvöxt með því að taka stærri virkjanakosti út fyrir rammaáætlun.

Úkraínumenn gerðu drónaárás á rússneskt herskip á fjölfarinni siglingaleið undan ströndum Finnlands í fyrradag.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta getur skotist á toppinn í riðli sínum í Þjóðadeildinni með sigri á Búlgörum í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,