
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Bíll hafnaði í Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi í morgun. Tveir voru í bílnum og komst annar þeirra út af sjálfsdáðum.
Skotárás í Kraká í Póllandi í gær er rannsökuð sem hryðjuverk. Árásarmaður drap sex manns og særði sextán. Stuttu eftir árásina fann lögregla foreldra og systur árásarmannsins látin í íbúð sinni og svo virtist sem þau hafi verið skotin.
Andstaða við breytingar á Loftbrú nær þvert á flokkslínur. Sveitarstjórnarfulltrúar stjórnarflokkanna á landsbyggðinni gagnrýna breytingarnar og krefjast endurskoðunar.
Veggjalús fannst á gistiheimili á Suðurlandi nýverið. Herbergin verða lokuð þar til meindýraeyðir hefur staðfest að aðgerðum sé lokið.
Arabíski stjórnmálaflokkurinn Ra´am í Ísrael heitir stuðningi takist Gadi Eisenkot að mynda ríkisstjórn. Flokkurinn vill koma Netanjahú frá völdum.
Íbúum á Flúðum hefur fjölgað mikið og víða eru framkvæmdir í sveitarfélaginu.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur í dag annan leik sinn í undankeppni EM 2028. Eftir stórsigur á Úkraínu fyrr í vikunni mætir Ísland Eistlandi í Tallin klukkan fjögur.

Útvarpsfréttir.