Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. nóvember 2026

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hefur sagt sig úr flokknum og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann er annar þingmaðurinn sem yfirgefur þingflokk Viðreisnar á réttum mánuði.

Úkraínuforseti hefur áhyggjur af fyrirhuguðum leiðtogafundi forseta Kína, Bandaríkjanna og Rússlands. Úkraínski herinn skaut hundruðum dróna að Rússlandi í nótt.

Rússar eru grunaðir um að hafa truflað GPS-móttakara flugvéla á leið til lendingar í Amsterdam í síðustu viku. Þetta er annað tilvikið á skömmum tíma.

Saksóknari á Norðurlandi eystra hyggst ákæra fimm menn sem voru handteknir um verslunarmannahelgina á Akureyri grunaðir um vopnalagabrot. Þeir voru með leikfangabyssur.

Það er meðbyr með lestri og bókum þessa dagana, fullorðnir lesa meira í ár en í fyrra.

Skíjaborgasmiður og skíthaugahoppari eru meðal orða sem er hampað í Búðardal á degi íslenskrar tungu. Þau eru úr smiðju Steinólfs í Ytri-Fagradal.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,