
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Saksóknari fór í dag fram á sex ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm yfir konu sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum.
Grindvíkingum býðst að kaupa aftur hús í bænum sem ríkið keypti eftir rýmingu fyrir réttum þremur árum.
Vefsíðum með barnaníðsefni á netinu fjölgar stöðugt og útbreiðsla þess eykst. Lögreglumaður segir suma hafa það að atvinnu að brjóta á börnum.
Rússar og Úkraínumenn hófu í morgun viðræður um frið með fulltingi Bandaríkjamanna. Danir boða aukinn stuðning við Úkraínu.
Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. hófst í morgun og stendur til föstudags. Forstjóri segir að til standi að sækja rúmlega 14milljarða í nýtt hlutafé.
Bakland og nánasta fjölskylda ræður miklu um hvort yngri kaupendur komast inn á fasteignamarkaðinn. Ungir kaupendur telja skort á eigin fé meiri hindrun en greiðslumat og afborganir.
Sveitarstjóri Húnaþings vestra segir nýjum reglum um hagsmunaskráningu ætlað að auka gagnsæi og koma í veg fyrir vafa um hæfi ráðamanna.

Útvarpsfréttir.