
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum. Hefðbundinni myndatöku á fundi utanríkisráðherra G20-ríkjanna í Atlanta var slaufað því sumir vildu ekki vera með rússneskum kollega sínum á mynd.
Uppsagnir félagsrágjafa hjá sveitarfélögum eru í mótsögn við yfirlýsingar stjórnvalda um aðgerðir til að draga úr fátækt barna og tryggja snemmbæran stuðning við viðkvæma hópa, segir formaður Félagsráðgjafafélagi Íslands
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg hefur verið fækkað um um það bil 130 frá því að nýr meirihluti tók við. Talið er að skorið hafi verið niður um 2,5 milljarða á ársgrundvelli.
Deilan um stjórnlagadómstól Póllands harðnar eftir átök í Varsjá í nótt, en forseti landsins hefur boðað til neyðarfundar með stjórnmálaflokkunum í dag.
Netþrjótar sem stálu jafnvirði milljarða bandaríkjadala í rafmynt frá kauphöllinni Binance eru taldir koma frá Norður-Kóreu. Þeir hafa sennilega blekkt starfsmann fyrirtækisins
Krabbameinssjúklingar sem áður urðu að fá frumumeðferð í Svíþjóð geta nú fengið hana á Landspítalanum. Sparar bæði óþægindi og fé, segir blóðlæknir.
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund. Við ræðum við þúsundasta íbúann í fréttatímanum.

Útvarpsfréttir.